| Velkomin á heimasíðuna mína |
| Ég heiti Bjartur Orri |
|
|
Um mig:
Ég er lítill prins sem fæddist 22.08.06, ég var aðeins að flýta mér í heiminn þar sem ég átti ekki að koma fyrr en 15. sept, en það var bara því ég vissi að mamma og pabbi voru SVO spennt að hitta mig :)
Ég var 12 merkur og 49.5 cm, voða nettur og fínn og með alveg hvítt hár. Pabbi minn heitir Jóhannes Hauksson og mamma mín heitir Hildur Rut Sigurbjartsdóttir. Ég er fyrsti gullmolinn þeirra og finnst þeim ég náttúrulega sætastur ;) Endilega verið dugleg að kvitta í gestabókina, það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur. Ekki vera feimin við að biðja um lykilorðið :) |
|
|
Annað:
LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.
Takk fyrir komuna á síðuna mína og endilega munið eftir að kvitta í gestabókina ;)
|
| Þú ert gestur nr. 24637 |